Veistu að mér finnst.....

02.01.2009 14:42:22 / heidrunt

dadara

Gleðilegt ár allir
Ekkert blogg í dag
<----- Setti inn annál fyrir árið 2008
Góða skemmtun
8) Heiðrún 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 11:45:52 / heidrunt

Vá hvað tíminn líður maður...

Ég er nú löngu búin að ná mér uppúr þessarri flensu minni, ef að flensu skildi kalla. Smá hor og hósti, sem betur fer, og ákvað því að blogga aðeins um daginn og veginn og uppfræða ykkur kæru lesendur ( sem virðast vera ansi margir?) aðeins um líf mitt og skoðanir þessa dagana.
Við hjúin komumst loksins að niðurstöðu hvað erfinginn skildi heita og var hann skírður Benedikt Natan þann 9. nóvember. Ekki voru allir voða sáttir við nafnið en þar sem að þetta er mitt barn ræð ég líklegast hvað ég skíri hann. Ég held samt að töffara amma mín fyrir norðan eigi nú mest í setningunni hér að ofan því að henni finnst Benedikt fallegt en Natan ljótt, henni finnst það hljóma eins og Satan takk fyrir;) En afþví að amma mín er bara amma mín þá er þetta alltílagi. Hún hefur ekki hingað til legið á skoðunum sínum og afhverju ætti hún að fara að gera það núna?
En annars gerist nú ansi fátt hér á bæ. Ég nenni nú ekki að fara að blogga um það hvað mér finnst Benedikt æðislegur og fullkominn og allt það því að öllum mæðrum finnst börnin sín svoleiðis og eins og mér, leiðast kannski fólk sem tala eingöngu um börnin sín. Þannig að ég skrifa hvað hann hefur gert inná síðuna hans á barnalandi.

Kreppan hefur svosem ekki bankað uppá hér hjá okkur, nema ef að við undaskiljum bílalánið sem að við tókum í erlendri mynt. Lánið komið langt yfir markaðsvirði bílsins eins og hjá svo mörgum en það þýðir víst lítið að vera bitur yfir þessu. Ég hef bara hugfast að það var ÉG sem ákvað að taka myntkörfulán og ÉG vissi allveg að þessu fylgdi áhætta. Og án djóks ég SKAMMAST mín fyrir að vera íslendingur þegar fréttir koma frá skrílslátum, já skrílslátum! eins og fyrir utan lögreglustöðina á Hverfisgötunni. Ekki skil ég afhverju íslenskur almenningur er að krefjast kostninga. Ég held að fólk geri sér í alvörunni ekki grein fyrir bæði tímanum og PENINGUNUM sem að fer í að kjósa uppá nýtt. Eitthvað held ég sem að mætti nú heldur betur nýta í eitthvað annað. Ég styð ríkisstjórnina sem situr núna, nema Árna Matt, hann má fjúka útí hafsauga fyrir mér. Ég persónulega dauðvorkenni þessum ráðherrum okkar. Búin að vera vansvefta í marga, marga daga og reyna að gera það sem þau geta til þess að bjarga landinu frá gjaldþroti. En hinsvegar styð ég það alfarið að skipt verði um stjórn í Seðlabankanum. Það er ekki hægt að maðurinn sem á Ísland sé að skipta sér svona af stjórnmálum þar sem hann ákvað sjálfur að hverfa frá þeim.

Alltof djúp þarna fyrir ofan en mér er allveg sama. Er á miðjunni í stjórnmálum en hallast samt frekar yfir á hægri vænginn.
Núna datt ég úr stuði, sjáumst eftir nokra daga
8) Heiðrún 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 15:36:49 / heidrunt

Flensublogg

Þar sem að ég er núna heimaliggjandi húsmóðir ( í orðsins fyllstu ) þá finn ég mér fátt annað til dundurs en að sitja í tölvunni og sinna drengnum, sem tekur sinn tíma því að hann getur vakað ENDALAUST. En þannig er mál með vexti að ég fékk e-mail um daginn þar sem mér var boðið að joina svipað samfélag og Facebook ( sem ég skráði mig inná um daginn:d ). Jújú ég skráði mig inná það bara svona aðalega útaf forvitni. Svo kom að því að setja inn prófíl mynd óg ég gerði það nú samviksusamlega og að sjálfögðu set ég inn mynd þar sem maður er slimmy og flottur, semsagt fyrir óléttu, með síða ljósa hárið slegið og í djammgírnum.
Ég ætla ekki að segja ykkur hvað ég á orðið margar vini, karlkyns, frá múslimalöndum sem vilja negla mig. Og svo sit ég við tölvuna og accepta ALLA sem vilja vera vinir mínir og hlæ svo að öllum skilaboðunum frá þeim. Hér eru nokkur dæmi:

Vovv! There is one very beautifull face. I am wondering you. I want to speak everytime. Dou you give msn the address.

This is so nice from you to be my friends, you are so cute and especially for me, I like you very much.

I thankful so much just to find someone like you in this life, after now you make this life really wonderful life.

If you would like to be more deep relationship with me, kindly add me in your messenger or email or give me your mail if you like.

Yours:

Wow,

 

I love your photos.

You are so pretty!

 

Can I ask if you have a boyfriend?

Love to hear more about you

Hi sweety ,
thx to add me.it is volkan from Turkey.You re so sexy for this reason I wanted to write u.if u can come to msn we can chat and you can see me with my webcam.I'm sure u like me )

þetta er samt BEST:so pretty, so slim, so polite, kisses

Eins og þið sjáið þá eru þetta allt hörku veiðilínur. Ég ætti kannski að skilja við Ástþór og hefja nýtt líf með einhverjum af vonbiðlum mínum. Á greinilega séns í þá alla;) Veit nú ekki hvort að þeir hreinlega halda það að konur falli allveg kylliflatar fyrir beiðnum um WEBCAMSEX!!!! Eins og ein beiðnin hljóðaði uppá. Sá mátti ekki vera vinur minn, ég tala ekki við dóna!

Ef að ykkur langar að fá bónorð frá múslima getiði farið inná: www.perfspot.com. Ég mana ykkur, bara til þess að létta ykkur lundina:d
Þangað til næst




» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 19:09:38 / heidrunt

jæja gott fólk..

Föstudaginn 19.09.08 kl 09:35 mætti snáðinn okkar á svæðið, loksins. Búið að bíða mikið eftir honum. Allveg gullfallegur og alger sjarmör ( allaveg búinn að bræða alla kvenkynsættingja og vinkonur), með löng augnhár og stór möndlulaga augu. Ótrúlega sætur. 



Ekkert aðeins að rifna úr stolti;) Loksins getur hann farið að kaupa bílabraut, hehe:haha:
Smá uppdate. Ætla kannski að gera síðu. Ættingjar fyrir norðan og svona. Þangað til verðiði bara að koma í heimsókn;)
Þangað til næst
8) Heiðrún 8)
P.s Kristín, ég á krakkann þannig að ég er með höfundarréttinn mín meginn;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 15:04:27 / heidrunt

+ 2

Enginn erfingi kominn en :haha:verkfall ljósmæðra leyst!!!:haha:
Ætla ekki einu sinni að reyna að fræða ykkur um það hvað ég er fegin. Go lightmothers go!
En takk fyrir allar kveðjurnar;)
Baby rígheldur sér ennþá, Ástþór hefur skotið hátt upp;) Fór í skoðun í gær og ljósmóðirin sagði að það væri nú sennilega vika í þetta ennþá. Fékk ótal símtöl í gær og í mörgum þeirra var ég spurð hvort að ég væri ekki orðin pirruð. En hvað hefur það uppá sig nema geðveikislegan pirring af minni hálfu. Hlýtur að skila sér á endanum. Trúi ekki öðru, annars verður bara að ná í það;) Ætlar að láta bíða eftir sér. Er ekki undan pabba sínum útaf engu:haha:. Ættgengur andskoti...8)
Og allir að vera duglegir að kommenta, greinilega MARGIR að forvitnast en enginn skilur eftir fótspor:evil: Alltaf gaman að sjá hverjir eru að kíkka;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.09.2008 17:32:51 / heidrunt

Uppfærsla frá því í júlí?;)

Allir löngu komnir yfir þessa ísbirni, fannst meira að segja rostungur þarna í millitíðinni þannig að ég ætla að skella inn nokkrum fréttum af ábúendum Lækjamóta 51..

Helst í fréttum að ég er ennþá ófrísk og þá ekkert smá;) Ef að þetta heldur svona áfram ætla ég að fara að fjárfesta í hjólbörum svo að ég geti hreyft mig almennilega. En síðustu dagar eru búnir að einkennast afþví að við erum bara búin að vera að bíða að eitthvað gerist þó svo að ég sé ekki skráð fyrr en á sunnudaginn þe 14 sept, þetta er allveg orðið ágætt í bili. Verð mikið fegin þegar að þetta verður búið og ég get farið að hreyfa mig almennilega og farið að einbeita mér að öðrum hlutum. En annars líður mér svona þokkalega, hef ekki spurt Ástþór hvernig honum líði en ég geri ráð fyrir að hann sé góður..;) En krílið hefur samt verið að stríða mér. Er farin að gefa ljósmæðrunum hæfæv þegar ég hitti þær því að ég er farin að venja komur mínar á fæðingadeildina í Keflavík svona ca 2svar í viku í mónitor (jey:$) og blóðþrýstingsmælingu. Er búin að vera ansi há í blóðþrýstingi og eiginlega á hættumörkunum, með mikinn bjúg á höndum fótum og í andliti eða bara eiginlega allstaðar..
Annars er allt orðið tilbúið hér á bæ fyrir erfingjann og allir orðnir svakalega spenntir og einu spurningarnar eru orðnar hvort að ég sé komin með verki. Fólkið í báðum fjölskyldum er hrætt við það að það verði ekki látið vita þegar þetta loksins gerist. Hulda hlakkar mikið til að eignast litla systur ( ekki það að við vitum eitthvað um það) og búin að nefna og allt saman. Verða ekki vonbrigði ef að þetta verður svo lítill bróðir;) En þetta er það helsta og ég geri ekki ráð fyrir að ég bloggi aftur fyrr en lífið er komið svona nokkurnveginn í normið aftur...
Greetings
8) Heiðrún ólétta8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.06.2008 17:14:01 / heidrunt

Nei nú er þetta búið..

Sjitt maður ég sá ísbjörn áðan


 Samojed Mylegend Rasputin

Hann býr á Suðurgötunni.
Heimsku íslendingar


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 10:57:20 / heidrunt

ÞETTA FINNST MÉR ÓGEÐ!!!!!!

Ég átti erfitt með að trúa þessu fyrr en ég var svona nokkurnvegin búin að skoða öll related myndbönd með þessu...
                             http://youtube.com/watch?v=sJkcrEuYcuI&feature=related
Verði ykkur að góðu....

Ég ætla að fara í Bónus og eyða helmingnum af laununum mínum. Brjálæði að versla inn. gera innkaupalista og fjárhagsáætlun:

* Pakkanúðlur 29 kr pakkinn
* Poppkex ca 300 kall pakki með 20 kökum í
* Laukur 50 kall kílóið
* Klósettpappír frá Euroshoper ( Hann er svo grófur að maður getur notað hann sem brauð)
* Tómatssósu 150 kr flaskan

Takk fyrir áheyrnina


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 12:05:53 / heidrunt

Neikvæðar stjörnuspár en annars hamingjulíf

Nei hæ...;)
Ég les alltaf stjörnuspána mína á hverjum degi. Síðustu vikuna hefur hún verið svona frekar neikvæð, sem að mér finnst mjög skrítið því að yfirleitt er Fiskurinn mjög jákvæð manneskja ( samkvæmt stjörnuspekinni ). En ekkert annað við þessu að gera og skella upp ánægða andlitinu og proof it wrong:d
Loksins, loksins mætti maðurinn sem á að leggja hitann í innkeyrsluna hjá okkur. Birtist hérna sprækur á miðvikudaginn og gerði ja kannski ekki helling en eitthvað. Viljiði geta...? Hann hefur ekki sést síðan. Ó þessir iðnaðarmenn ( muna: jákvæðni).
Ástþór menningarlegi ætlar að bjóða mér í leikhús í kvöld. Ákvað upp á sitt einsdæmi um daginn að kaupa leikhúsmiða. Ég var spurð að því hvenær ég vildi fara ( hefði ábyggilega tekið kast á aumingja honum ef að ég hefði ekki fengið að ráða því;) ) Við ætlum að fara á Laddashowið, ábyggilega ágætis afþreying, ég hlakka allavega til.
En annars er allt fínt að frétta héðan af Lækjamótunum. Pallur í "byggingu" (muna: jákvæðni). Baklóðin lítur út eins og eftir jarðsprengjuárás og eru 60 cm djúpir skurðir allstaðar (muna: jákvæðni).
Kannski ætti maður að "koma útúr skápnum" loksins svo að fyrir þá sem ekki vita skilji eftirfarandi. Gengin með tæpar 23 vikur og allt í sómanum og allir hamingjusamir:haha:
Fengum ekki að vita kynið í 20v sónarnum þannig að við höfum helling til þess að hlakka til þann 14. sept. Var flýtt um 3 daga var fyrst skráð 17. Þetta er fín dagsetning, einhvernvegin hafa fjölskyldumeðlimirnir mínir einsett sér að gera það bara einu sinni á ári, annaðhvort í nóv eða des þannig að allir eigi afmæli á sama tíma. Þ.e í ágúst eða september. Svo eru einhverjir sem eiga afmæli í hinum mánuðunum. En þeir eru ekki margir. Af 20 manna "stórfjölskyldunni" minni ( afi, amma, börn makar, barnabörn og barnabarnabörn) eiga 11 afmæli á þessum 2 mánuðum og helst bara 3 dagar á milli. Thank you very nice. Hehe.
En annars er Ástþór eins og skopparakringla í kringum mig og ég held án djóks að ég hafi ekki getað fundið mér betri mann til þess að eignast barn með:haha: En vinnan mín fer allveg að líða undir lok, er komin með grindargliðnun. Samt einhvernvegin datt mér það í hug að fara í bæjarvinnuna í sumar. Samt bara til þess að vera með. Frá 8 - 12. Þarf að hafa tilgang með því að vakna svona snemma á morgnanna. Er hvort sem er alltaf vöknuð svona snemma.
En þetta ætti að nægja í bili.
8) Heiðrún 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 13:53:46 / heidrunt

Hvað haldiði?

Jú ég fékk andann alltíeinu yfir mig og ákvað að blogga smávegis.

Þegar ég sat við eldhúsborðið áðan og bar að lesa yfir 24 stundir rak augun í heilsíðuauglýsingu. Auglýsingin tilkynnti lesendum það að 24 stundir væru búnir að snúa þróuninni við og það væri komið í 1sta sæti yfir mest lestnu dagblöðin í aldurshópnum 18 - 49 ára. Sannleikskorn í þessu þar sem við lesum bara 24 stundir og afhverju? Blaðberinn hjá Fréttablaðinu hlýtur að hafa sagt upp vinnunni sinni í nóvember því að við höfum ekki fengið Fréttablaðið ( og fleirri hérna í Sandgerði) síðan, allavega ekki á virkum dögum. Þannig að já ég er sammála þessu.

En að öðru. Ég vil fá vor. Það á ekki að snjóa í lok mars. En ég virðist gleyma því eins og flest allir á Íslandi að veðrið skiptist á 10 mín fresti. Ég er bara búin að búa hér í 21 ár og þetta kemur mér ALLTAF jafn mikið á óvart ef að það byrjar að snjóa;)

Nýr bíll kominn í hlaðið, ef allir bílarnir við Lækjamót 49 og 51 eru taldir þá eru 6 bílar hérna fyrir utan. Fólk sem er á njósnarúntum hérna í götunni heldur ábyggilega alltaf að það sé standandi partý hérna. Við eigum 4 af þessum bílum:haha:

Er farin að hlakka óeðlilega til þess að komast í sumarfrí. Bara ca 75 dagar í það. Erum að spá í að leggja land undir fót og ferðast eitthvað lengra en á Kirkjubæjaklaustur og í Ásbyrgi ( lengra hef ég ekki komið ). Sjáum hvað við getum gert á þessum 2 vikum sem að Ástþór verður með mér í fríi. Jafnvel að heimsækja systu fyrst að við komumst ekki um páskana vegna anna hjá öllum aðilum. Og haldiði ekki að það hafi verið að detta í gegnum póstlúguna boðskort í fermingu á Ísafirði í lok apríl. Brjálað að gera.

En annars eru boðskort að detta inn um lúguna núna. Erum boðin í 2 brúðkaup í sumar. Veit ekki hvort að við förum í fyrra brúðkaupið afþví að hún Sandra klára vinkona mín ætlar að setja upp hvítan koll sama dag;) Rosa stolt af henni. Þetta ætla ég líka að gera einhvern daginn:$

Er að velta fyrir mér hvort að ég eigi að fara að færa mig yfir á blog.is. Þar sem að ég er mikið inná mbl.is að skoða fréttir og annað eru oft fréttir sem að ég einfaldlega verð að hafa skoðanir á, fyrir utan það þá finnst mér mjög gaman að lesa, hlusta og horfa á fréttir. Kannski maður færi sig bara yfir og verði snobbaður moggabloggari. Svo er aðalástæðan líka að blocentral er ekki allveg að gera sig þessa dagana. Ég ætlaði nú að vera rosalega dugleg hérna inná um daginn og "laga" nú aðeins til hérna inná. En já, ég fann ekkert það sem að ég var að leita að og gat enganvegin eytt neinu útaf hérna. Ég þoli ekki að tenglarnir mínir eru ekki í stafrófsröð og *röflröflröflröfl*. En þetta er kannski smámunasemi í mér, ég get ekki borðað úr snakk- eða nammipoka ef að Ástþór opnar hann á hvolfi. Ég þarf að hella innihaldinu í skál8| Svona getur maður verið klikkaður...

En ég held að þetta sé orðið ágætt í bili. Kem með fleirri fréttir næst, hvort að ég sé flutt eður ei;)
Þangað til næst
8) Heiðrún ofurbloggari8)



» 5 hafa sagt sína skoðun

17.03.2008 13:26:59 / heidrunt

Ég elska svona dót..

Fann þetta á youtube. Ég elska svona dót. Fiskaeðlið eitthvað farið að sýna sig, enda búið að liggja í dvala í 21 ár ( fiskurinn er rosalega listrænn, ég er ekki listræn fyrir 5 aur ).

http://youtube.com/watch?v=mxbhuIJxAmU&feature=related

Er bara að hangsa í páskafríinu mínu. Alltaf gott að vera í fríi í skólanum en eitthvað fer fríið mitt í vinnunni forgörðum, verð að vinna eiginlega alla páskana. Fæ frí á fös, sun og mán. Ég hlakka svo til þess að fara í sumarfrííííííí!!! Vorum einmitt að skipuleggja sumarfríið okkar í morgun. Búin að bóka mig í frí frá því um miðjan júní til miðs júlí. Tjáh það er gott að vera eigin herra;) Vinn svo í 11 daga í viðbót og svo er ég komin í frí um óákveðin tíma. Hlakka svo til...8)

Annars er bara allt gott að frétta héðan. Allir sprækir og voða hamingjusamir með tilveruna.
Þetta var nú bara aðeins til þess að lífga uppá síðuna. Ábyggilega allir búnir að horfa á Ástþór/Andreu Gylfason mörgu sinnum.
Góðar stundir
8)Heiðrún8)
BTW

Orðin 21 og fer að halda uppá afmælisafmæli héðan í frá;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 16:05:33 / heidrunt

Nei þetta er nú bara djók...!

Alltaf er Ástþór mér á óvart...;) Tjékkið son Andreu Gylfa. 

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4360053


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 20:15:44 / heidrunt

Gleðileg nýtt ár...;)

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla

Nýárskveðja

Ástþór og Heiðrún

( Annáll væntanlegur í fyrstu viku 2008 )

Góða skemmtun


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 12:52:28 / heidrunt

Merry christmas...

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

þökkum það liðna.

Jólakveðjur

Ástþór og Heiðrún

( Þeir sem fengu ekki jólakort frá okkur sendu okkur ekki í fyrra. Þannig að ef þið viljið fá jólakort á næsta ári, sendið okkur þá núna)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 14:15:30 / heidrunt

Nýjustu tölur komnar í hús...

Og niðurstaðan að á Lækjamótum 51 eru til.... 48 skópör!!!!

Það er hreinlega ekki í lagi með heimilisfólkið hérna... Ástþór á 17 pör einn. Halló, maður fer nú að efast aðeins um manndóminn hérna.. Ég veit það að ég á 26 pör en ég hef þá afsökun að ég er þó kvennkyns og með þráláta söfnunaráráttu fyrir hverskyns skófatnaði. Kræst.

10 dagar í jól og hef verið að dunda mér hérna hægt og rólega við það að bæði að skreyta og þrífa m.a kossaför af öllum speglum sem eru á hæðina 50 - 70 cm;) Verð að fara að banna Ástþóri þetta, það eru takmörk fyrir því hvað það er hægt að elska sjálfan sig mikið:D

En þó svo að ég hafi allan heimsins tíma fyrir mér núna þá miðar mér ansi hægt og aðeins einn dagur tekinn fyrir í einu. Fæ bara hausverk að hugsa svona fram í tímann.. Nema þegar kemur að íbúðinni okkar. Erum að melta hvort að við eigum að setja á sölu eftir áramót. Erum hætt að komast fyrir hérna þó svo að þetta sé 90 fm íbúð og við erum bara 2 1/2 hérna. Bílskúr með geymslu og aukaherbergi er svona á planinu. Og það sem að ykkur er að detta í hug núna er ekki rétt og ekki á dagskránni næstu 3 -4 árin.....! Við ætlum að mennta okkur fyrst.

Klikkaða veðrið maður. Sem betur fer er ruslatunnan okkar bæði bundin niður og stífuð upp við vegginn þannig að hún fer ekki á flakk. En alltaf er ég jafn spennt þegar er svona vont veður, þá kannski er minnsti, agnarsmár möguleiki á að það sé ekki unnið í Nýfiski, það er ekkert skemmtilegra en að vera í fríi á launum;) 

Húsbóndinn á leiðinni til útlanda í janúar hélt hann. Svo aftur í maí og svo kannski aftur í september. Aldrei getur hann verið heima hjá sér;)

HVAÐ ER AÐ? Fer stundum inná barnaland einungis til þess að skoða hvað þessar kellingar geta verið geðveikislega vangefnar og veðurtepptar í hausnum. Ég myndi vorkenna mér ef að ég hefði ekkert annað og skárra við tímann minn að gera en að vera slúður-og slefberi..

Ekkert bólar á innkeyrslu hérna, eins og ég hef komið að áður gerast góðir hlutir í sumum tilfellum MJÖG hægt... Sandurinn búinn að skemma fína dýra parketið mitt:evil:

Fékk sendan heim greiðsluseðil fyrir skólagjöldunum. Fékk fiðrildi í magann. Hlakka ekkert smá til og núna er það bara að bretta upp ermar og harkan sex og drullast nú til þess að klára þetta og fá mér hvítan koll og fara svo að læra eitthvað sniðugt sem að ég verð rík af... Annars verður mín laun bara vasapeningur fyrir mig. Ástþór verður ábyggilega orðinn sædkikk hjá forstjóranum eða eitthvað ef að hann ætlar að halda svona áfram. Ég er allveg hryllilega stolt af honum og ég skammast mín ekkert fyrir það að pósta því á netinu:haha:

Erum í semi gæludýraleit, gengur eitthvað hægt..

Sjáumst fyrir jól;)

8) Heiðrún 8)

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Heimsóknir
Í dag:  9  Alls: 26038
Dagsetning
22. mars 2010
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 551 dögum
Hulda verður stóra systir
Sætu systkinin mín;)
Það allra nauðsynlegasta..